Frá Hvammstanga.
Frá Hvammstanga.
Fréttir | 04. október 2018 - kl. 15:33
Vatnslaust á Hvammstanga í kvöld

Heita- og kaldavatnslaust verður á Hvammstanga frá klukkan 17 í dag og má gera ráð fyrir að vatnsleysið standi yfir í 5-6 klukkutíma. Ástæðan er tengingar hita- og vatnsveitu í nýtt hverfi við Lindarveg og færsla á stofnlögn við vatnstank fyrir Hvammstanga. Heitavatns laust verður á eftirtöldum stöðum: Nestún, Grundartún, Norðurbraut að undan skildu Hótel Hvammstanga, Bakkatún, Fífusundi, Kirkjuvegi, öllu Melahverfi og á svæðinu norðan Hvammstanga. Kaldavatnslaust verður á öllu veitusvæði vatnsveitu Hvammstanga. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.

Þar á einnig finna ábendingu til húsráðenda vegna þjónusturofs hitaveitu:

Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju með viðeigandi óhljóðum.

Húsráðendum er bent á að við viðgerðir kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.

Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga