Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:21 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Fyrirkomulag rjúpnaveiða í vetur var rætt á fundi landbúnaðarráðs Húnaþings vestra á miðvikudaginn. Ákveðið var að fyrirkomulagið verði eins og í fyrra með þeirri undantekningu að fjölga á um eina byssu á svæði 2, sem er eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru, þannig að leyfðar verða fimm byssur á svæðinu.
Veiðimenn með gilt veiðikort, útgefið af veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar, geta keypt sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra sem veitir þeim einum heimild til rjúpnaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins.
Svæðin eru: 1) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði ásamt jörðunum Króki, Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og eignarhlut Húnaþings vestra í Öxnatungu. 2) Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.
Veiðileyfin verða til sölu hjá Ferðaþjónustunni Dæli. Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000 á dag. Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði 1 er takmarkaður við fjórar byssur á dag en fimm byssur á svæði.
Sjá má nánar um fyrirkomulag rjúpnaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra hér.
Rjúpnaveiðitímabilið 2018
Fjöldi veiðidaga eru 12 sem skiptast á fjórar helgar, þ.e. síðustu helgina í október og fyrstu þrjár í nóvember:
-
föstudaginn 26. október, laugardaginn 27. október og sunnudaginn 28. Október,
-
föstudaginn 2. nóvember, laugardaginn 3. nóvember og sunnudaginn 4. nóvember,
-
föstudaginn 9. nóvember, laugardaginn 10. nóvember og sunnudaginn 11. nóvember,
-
föstudaginn 16. nóvember, laugardaginn 17. nóvember og sunnudaginn 18. nóvember.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |