Hnjúkabyggð 34. Ljósm: Jón Sig.
Hnjúkabyggð 34. Ljósm: Jón Sig.
Tilkynningar | 05. október 2018 - kl. 13:00
Ámundakinn opnar nýtt hús á Blönduósi

Þann 6. október næstkomandi verður nýtt þjónustuhús fyrir mjólkursöfnun í Húnavatns- og Skagafjarðarsýslum tekið formlega í notkun að Hnjúkabyggð 34 á Blönduósi

Ámundakinn ehf. sem á og hefur annast byggingu hússins, sem hefur verið leigt Mjólkursamsölunni ehf. til langs tíma, býður hér með héraðsbúum að vera viðstaddir formlega opnun, skoða húsið og þiggja léttar veitingar.

Hefst athöfnin kl. 14.00.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga