Frá sýningunni á Kleifum 2017
Frá sýningunni á Kleifum 2017
Fréttir | 06. október 2018 - kl. 14:37
Verðlaunuð fyrir sýningu á Kleifum

Finnur Arnar Arnarson og Áslaug Thorlacius hlutu Menningarverðlauna DV fyrir árið 2017 í flokki myndlistar. Verðlaunin fá þau fyrir áhugaverða og frumlega uppsetningu á sýningu í gömlu fjárhúsunum á bænum Kleifum rétt utan við Blönduós sumarið 2017. Menningarverðlaun DV voru veitt við hátíðlega athöfn í gær í höfuðstöðvum Frjálsrar fjölmiðlunar við Suðurlandsbraut. Verðlaunin hafa verið veitt árlega frá árinu 1979 fyrir framúrskarandi árangur á menningarsviðinu.

Listamenn sem áttu verk á sýningunni hjá Finni og Áslaugu sumarið 2017 voru Olga Bergmann, Anna Hallin, Dodda Maggý, Ragnar Kjartansson og Egill Sæbjörnsson. Um var að ræða fjögur vídeóverk sem sýnd voru hvert í sinni kró fjárhúsanna. Hjónin endurtóku svo leikinn í sumar þegar listsýningin Inniljós var opnuð í útihúsunum. Fram kemur í DV að hjónin ætla að halda áfram að glæða menningarlífið í sveitinni.

Í þetta skiptið voru verðlaunin veitt í sjö flokkum; leiklist, tónlist, kvikmyndum, myndlist, bókmenntum, fræðiritum og stafrænni miðlun auk sérstakra heiðursverðlauna. Sjá nánar um verlaunin hér.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga