Tilkynningar | 09. október 2018 - kl. 20:14
Sláturbasar Krabbameinsfélags Hvammstangalæknishéraðs
Frá stjórn

Sláturbasarinn 2018 verður haldinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga laugardaginn 13. október næstkomandi og hefst klukkan 13. Stjórn félagsins stefnir að því að hafa basarinn sem veglegastan þar sem félagið verður 50 ára þennan sama dag. Þeir sem vilja gefa á basarinn eru beðnir að hafa samband við einhverja stjórnarkvenna. Kaffibrauð og önnur matvæli ásamt handavinnu eru vel þegin.

Tekið verður á móti vörum/gjöfum á basarinn í félagsheimilinu á laugardaginn klukkan 11-12. Félagsheimilið á Hvammstanga styrkir félagið með því að lána aðstöðuna til sláturgerðarinnar og fyrir basarinn endurgjaldslaust. Kaupfélag Vestur-Húnvetninga og sláturhús KVH gefa einnig allt hráefni til sláturgerðarinnar. Stjórn félagsins kann þessum styrktaraðilum að sjálfsögðu bestu þakkir fyrir.

Með von um góðar undirtektir nú sem endranær ásamt þökkum fyrir veittan stuðning sl. 50 ár.

Ath. að ekki er posi á staðnum og því ekki hægt að taka við greiðslu með kortum!

Stjórn Krabbameinsfélags Hvammstangalæknishéraðs

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga