Fréttir | 11. október 2018 - kl. 16:59
Húnavatnshreppur auglýsir eftir styrkbeiðnum

Húnavatnshreppur gefur félagasamtökum, fyrirtækjum og einstaklingum kost á að sækja um styrki vegna viðburða eða verkefna á næsta fjárhagsári og er umsóknarfrestur til 22. október næstkomandi. Í auglýsingu kemur fram að styrkbeiðnir vegna viðburða eða verkefna skulu samræmast hlutverki sveitarfélagsins eða vera í samræmi við stefnu þess og áherslur og að styrkir séu ekki veittir eftir á.

Þá segir í auglýsingunni að styrkveiting feli ekki í sér fyrirheit um frekari skuldbindingu af hálfu sveitarfélagsins nema gerður sé sérstakur samningur þess efnis. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem nálgast má á vef Húnavatnshrepps.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga