Fréttir | 13. október 2018 - kl. 08:47
Afmælissýning Skotfélagsins Markviss

Skotfélagið Markviss stendur fyrir byssusýningu í Félagsheimilinu á Blönduósi um næstu helgi í tilefni af 30 ára afmæli félagsins. Félagsmenn ætla að sýna byssur sínar og verður fjölbreytileikinn í fyrirrúmi m.a. herrifflar, skammbyssur, veiðibyssur, keppnisbyssur, byssur smíðaðar af Jóni Þorsteinssyni og Jóni Björnssyni og fleira og fleira.  

Byssusýningin verður laugardaginn 20. október klukkan 10-17 í Félagheimilinu á Blönduósi að Húnabraut 6.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga