Vatnsdalshólar. Ljóms: efla.is.
Vatnsdalshólar. Ljóms: efla.is.
Fréttir | 13. október 2018 - kl. 08:59
Viltu giska á fjölda Vatnsdalshóla?

Eins og fram hefur komið í fréttum er verkfræðistofan Efla að freista þess að telja Vatnsdalshólana með hjálp nýjustu tækni og vísinda. Niðurstöður talningarinnar, byggðar á ákveðnum forsendum, verða gefnar upp í Landanum á Ríkissjónvarpinu sunnudaginn 21. október næstkomandi. Nú hefur Efla útbúið gagnvirkan Vatnsdalshólaleik þar sem hæg er að ferðast um svæðið og kasta niður stikum til að telja hólana. Hægt er að hlaða leikinn niður á borð- eða fartölvu með Windows stýrikerfinu.

Verðlaun verða veitt fyrir rétt svar eða sem næst réttu svari. Í verðlaun eru Bose, quiet comfort 35 II, þráðlaus heyrnartól.

Sjá nánar á vef Eflu.

Um hvað snýst verkefnið
Hafist var handa við að kortleggja svæðið, sem er um 4 ferkílómetrar, með því að fljúga dróna yfir það. Með drónanum var unnt að afla gagna um hæðarlegu á svæðinu og taka nákvæmar loftmyndir í háskerpu. Gögnin sem dróninn aflaði voru færð inn í landupplýsingakerfi Eflu þar sem unnið var áfram með þau.

Landlíkan
Fyrsta skrefið var að vinna þrívítt landlíkan af svæðinu og taka út úr því allar hæðir sem gætu haft áhrif á talninguna. Þar er átt við hæðir eins og tré, byggingar, bílar, uppbyggða vegi og mannfólk sem augljóslega eru ekki hólar. Í kjölfarið voru víðtækir greiningarmöguleikar landupplýsingakerfa nýttir til að vinna gögnin áfram og finna fjöldatölu fyrir hólana. Í ferlinu voru nýttar sömu aðferðir og sérfræðingar Eflu á sviði landupplýsinga hafa reynslu af að nýta í ýmiskonar greiningar er tengjast m.a. vatnafari, flóðasvæðum, rennsli, magntöku og fl. og þær aðferðir voru aðlagaðar að verkefninu.

Áskorunin
Stærsta áskorunin í verkefninu var fólgin í því hvernig mætti skilgreina hvað er hóll. Engar opinberar skýringar (sem vitað er um) eru til um þau hæðarviðmið og því varð EFLA að gefa sér þær skilgreiningar eftir bestu getu.

Hvað eru hólarnir margir?
Fjöldi Vatnsdalshóla verður uppljóstraður í þætti Landans sunnudaginn 21. október næstkomandi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga