Fréttir | 28. október 2018 - kl. 20:47
Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem haldið var á Blönduósi 19. október síðastliðinn var skipuð samgöngu- og innviðanefnd. Hlutverk hennar er að vinna að upplýsingaöflum vegna samgönguáætlunar SSNV með starfsmönnum samtakanna. Nefndin er skipuð einu fulltrúa frá hverju sveitarfélagi í landshlutanum. Framkvæmdastjóri SSNV mun starfa með nefndinni og aðrir starfsmenn samtakanna eftir atvikum.
Á vef SSNV segir að ítarleg upplýsingaöflun og greining á þáttum er varða samgöngu- og innviðamál sé grundvöllur þess að setja megi saman raunhæfar áætlanir um uppbyggingu samgöngumannvirkja og annarra innviða í landshlutanum.
Eftirtaldir aðilar eru í samgöngu- og innviðanefnd SSNV:
Aðalmenn: Til vara:
Indriði Þór Einarsson Sveinn Úlfarsson, Skagafirði.
Magnús Magnússon Guðný Hrund Karlsdóttir, Húnaþ. vestra
Alexandra Jóhannesdóttir Halldór G. Ólafsson, Svf. Skagaströnd
Guðmundur Haukur Jakobsson Rannveig Lena Gísladóttir, Blönduós.
Drífa Árnadóttir Eyþór Einarsson, Akrahreppur
Einar K. Jónsson Þorleifur Ingvarsson, Húnavatnshreppur
Dagný Rósa Úlfarsdóttir Magnús Björnsson, Skagabyggð