Fréttir | 31. október 2018 - kl. 22:21
Söfnun fyrir Hjálparstarf kirkjunnar
Frá sóknarpresti

Þann 1. nóvember er landssöfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.

Væntanleg fermingarbörn munu ganga um bæinn frá um kl 18:00 til 20:00 með söfnunarbauka sem merktir eru Hjálparstarfi kirkjunnar og safna framlögum með það í huga að margt smátt gerir eitt stórt.

Söfnunin er, eins og áður segir á, landsvísu á vegum íslensku þjóðkirkjunnar. 

Með bestu kveðju Sr. Sveinbjörn Einarsson

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga