Fréttir | 05. nóvember 2018 - kl. 22:26
Safnað fyrir hástökksáhöldum með eggjasölu

Frjálsíþróttadeild Hvatar selur egg í baksturinn fyrir jólin en verið er að safna fyrir hástökksáhöldum. Eggjabakki með 15 eggjum kostar kr. 1.000. Þeir sem vilja styrkja frjálsíþróttadeildina eru beðnir um að hafa samband við Steinunni Huldu í síma 869-4857 eða með tölvupósti á netfangið steinamagg@gmail.com.

Fram þarf að koma fjöldi bakka og verða þeir keyrðir heim að dyrum um miðjan mánuðinn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga