Fréttir | 08. nóvember 2018 - kl. 17:11
Leikfélag Blönduóss heldur aðalfund

Aðalfundur Leikfélags Blönduóss verður haldinn í kvöld 20 í Félagsheimilinu á Blönduósi. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf. Starfsemi félagsins hefur verið lítil sem engin undanfarin ár og þarf nýtt fólk til starfa til að byggja upp starfsemina. Íbúar Blönduóss og nágrennis eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í að móta stefnu og starfsemi félagsins til framtíðar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga