Langidalur.
Langidalur.
Fréttir | 09. nóvember 2018 - kl. 09:16
Haustdagur ferðaþjónustunnar

Haustdagur ferðaþjónustunnar á Norðurlandi vestra verður haldinn í félagsheimilinu Miðgarði í Skagafirði miðvikudaginn 14. nóvember næstkomandi frá klukkan 13:30-16:00. Þetta er þriðja árið sem ferðamálafélögin á Norðurlandi vestra og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir þessum samráðsvettvangi. Boðið verður upp á áhugaverð erindi um ýmisleg málefni ferðaþjónustunnar.

Dagskrá:

Inngangur

Norðurland í sókn – Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands

Nýsköpun í ferðaþjónustu – Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans

Breytingar á löggjöf á sviði ferðamála – Helena Karlsdóttir og Nanna Dröfn Björnsdóttir, lögfræðingar Ferðamálastofu

Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á ssnv@ssnv.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga