Frá Skagaströnd
Frá Skagaströnd
Fréttir | 09. nóvember 2018 - kl. 09:17
Íbúafundur um aðalskipulag Skagastrandar

Haldinn verður opinn íbúafundur í Bjarmanesi á Skagaströnd, fimmtudaginn 15. nóvember klukkan 20, um endurskoðun á aðalskipulagi Skagastrandar. Á fundinum munu ráðgjafar frá Landmótun kynna verkefnislýsingu skipulagsvinnunnar og fara yfir helstu áherslumál og næstu skref. Eftir kynningu verða almennar umræður og leitað til íbúa um ýmis atriði varðandi framtíðarþróun sveitarfélagsins.

Allir sem eru áhugasamir um skipulag og framtíðarsýn sveitarfélagsins eru hvattir til að mæta.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga