Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:26 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:26 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:26 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:26 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:26 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:26 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Orka náttúrunnar og gagnaversfyrirtækið Etix Everywhere Borealis hafa gert með sér samning um rafmagnsviðskipti vegna uppbyggingar á gagnaverum á Blönduósi og á höfuðborgarsvæðinu. Etix Everywhere Borealis hefur rekið gagnaver hér á landi um hríð og vex hratt, en það er í blandaðri eigu íslenskra og erlendra aðila. Fyrirtækið opnaði nýlega gagnaver við Blönduós og er frekari uppbygging fyrirhuguð þar og á Reykjanesi. Í kjölfar aðkomu alþjóðlega gagnaversins Etix Everywhere að Borealis hefur uppbygging aukist til muna.
Í tilkynningu segir Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ON að það sé afar jákvætt að fá fjölbreytta, alþjóðlega og vistvæna starfsemi til landsins sem sjái kosti þess að nýta endurnýjanlega orku.
Björn Brynjúlfsson, framkvæmdastjóri Etix Everywhere Borealis segir að samningurinn við ON tryggi félaginu orku til frekari uppbyggingar með erlendum viðskiptavinum. „Eitt af samkeppnisforskotum gagnavera á Íslandi eru endurnýjanlegir orkugjafar á borð við jarðvarma og kalt veðurfar sem hentar vel til kælingar. Erlendir viðskiptavinir horfa í auknum mæli á þessa þætti og er því mikilvægt og jafnframt ánægjulegt að geta boðið þeim upp á endurnýjanlega orku úr jarðvarmavirkjunum ON.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |