Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:42 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:42 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:42 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:42 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:42 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:42 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Valdimar O. Hermannsson sveitarstjóri á Blönduósi tók daginn snemma. Í morgun var hann mættur í myndver N4 á Akureyri til þess að ræða við Karl Eskil Pálsson í þættinum Landsbyggðum, sem sýndur verður á fimmtudagskvöld. Umræðuefnið er meðal annars mikil uppbygging á Blönduósi og framtíðarhorfur.
Þátturinn verður síðan aðgengilegur á huni.is.
Viðsnúningur orðið í sveitarfélaginu
Segja má að Blönduós hafi verið í fókus fjölmiðla síðustu daga vegna jákvæðra frétta af fólksfjölgun og uppbyggingu á staðnum. Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gær var haft eftir Valdimari að viðsnúningur hafi orðið í sveitarfélaginu, ekki síst vegna aðkomu gagnavers. Búið sé að snúa vörn í sókn og stefnir í mikla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á næstu árum eftir varnarbaráttu undanfarna áratugi. Nefnir hann að við götu eina sé t.d. verið að byggja tvö fyrstu einbýlishúsin á staðnum í tíu ár. Þá sé búið að úthluta lóðum fyrir um 28 íbúðir.
Valdimar sagðist einnig merkja mikla trú á samfélaginu. „Fólk er að flytja hingað, það hefur aukist íbúafjöldinn um 44 frá áramótum, sem er um 5%, sem er mikil breyting frá fyrri tíð. Vonandi heldur það áfram og við stefnum bara í þúsund á næstu árum,“ sagði Valdimar.
Fjöldi fólks vinnur nú að byggingu gagnavers á Blönduósi. Þetta er milljarðafjárfesting alþjóðlegs fyrirtækis, sem Valdimar telur að hafi einna mest áhrif á þessa þróun. Annars konar atvinnulíf sé þó einnig í sókn, til dæmis ferðaþjónusta, og er búið að úthluta einum 17 lóðum undir atvinnuhúsnæði á þessu ári. Valdimar, sem tók við sem sveitarstjóri í vor, er mjög bjartsýnn. „Það er ekki hægt annað, bara ánægjulegt og gaman að koma inn á þetta svæði í þessum fasa, taka þátt í þessu og fylgja þessu áfram,“ sagði Valdimar í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gær.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |