Fréttir | 20. nóvember 2018 - kl. 09:26
Ekki láta áramótabrennur brenna inni

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra hvetur þá sem hyggjast standa fyrir áramótabrennum að drífa í að sækja um starfsleyfi sem fyrst. Samkvæmt reglugerð umhverfisráðuneytisins um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit tekur leyfisveitingin að minnsta kosti fimm vikur. Ástæðan er sú að það ber að auglýsa eftir athugasemdum í fjórar vikur og síðan er greinargerð tekin saman um útgáfuferil starfsleyfisins.

Starfsleyfisferlið er það sama og ef um vær að ræða olíubirgðastöð, en vonir standa til að ferlið verði að einhverju leyti einfaldað með að gera brennur skráningaskyldar hjá Umhverfisstofnun.

Málsmeðferðin felur í sér að auglýsa eða upplýsa eigi almenning í þremur skrefum um fyrirhugaða starfsemi og gefa kost á athugasemdum. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga