Tilkynningar | 30. nóvember 2018 - kl. 09:34
Aðventuhátíð verður í Hólaneskirkju þriðjudaginn 4. desember klukkan 18:00. Kirkjukór Hólaneskirkju, Sunnudagskóla- og TTT- börnin syngja jóla- og aðventusöngva undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur organista. Fermingarbörn flytja hugvekjuþátt og helgileik. Vera Ósk Valgarðsdóttir skólastjóri flytur jólahugleiðingu og Sr. Bryndís Valbjarnardóttir jólasögu.
Verið öll hjartanlega velkomin. Gleðilega aðventu.