Ljósm: usvh.is
Ljósm: usvh.is
Fréttir | 30. nóvember 2018 - kl. 13:33
Húnaklúbburinn á alþjóðlegri vinnustofu

Húnaklúbburinn í Húnaþingi vestra, sem er samstarfsverkefni Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga, Selaseturs Íslands og íþrótta- og tómstundafulltrúa Húnaþings vestra, tók þátt í alþjóðlegri vinnustofu, Tools for Youth Exchanges, á Laugarvatni um síðustu mánaðarmót. Á henni lærðu þátttakendur hvernig hægt er að þróa og innleiða betra ungmennastarf og byggja upp tengslanet og samstarf við önnur félög með álíka starfsemi. Á vinnustofuna komu 32 fulltrúar frá 16 löndum.

Sagt er frá þessu á vef USVH. Þar kemur fram að klúbburinn hafi fengið styrk frá Rannís og Erasmus+ til að taka þátt í vinnustofunni. Þar segir einnig að á þessi ári hafi klúbburinn tekið þátt í Erasmus samstarfsverkefni með sænsku æskulýðsfélagi sem hafi komið í heimsókn í júlí. Til standi svo að heimsækja þau næsta sumar. Þema klúbbsins í ár var loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á strand- og dýralíf.

Markmið Húnaklúbbsins er að stuðla að virðingu fyrir náttúrunni með því að nota staðbundna umhverfisfræðslu, þar sem þátttakendur læra ekki einungis hvernig á að varðveita og vernda umhverfið heldur einnig hvernig þau geta tjáð sig varðandi þessi málefni við aðra.

Jessica Faustini Aquino, starfsmaður Selasetursins, sem leiðir Húnaklúbbinn en hann hefur verið starfandi í tvö ár við góðar undirtektir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga