Tilkynningar | 01. desember 2018 - kl. 11:09
Jólamarkaður Rauða krossins
Tilkynning frá stjórn

Jólamarkaður Rauða kross deildarinnar í Húnavatnssýslum verður haldinn fimmtudaginn 6. desember frá klukkan 16-18. Markaðurinn er haldinn í húsnæði Rauða krossins að Húnabraut 13 á Blönduósi. Allur ágóði af sölu rennur óskertur í Jólasjóð A-Hún. Jólasjóðurinn er í samstarfi við félagsþjónustu A-Hún. en sjóðurinn aðstoðar fjölskyldur og einstaklinga eftir þörfum. Einnig verður tekið við frjálsum framlögum í sjóðinn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga