Fréttir | 03. desember 2018 - kl. 07:45
Ljósin á jólatrénu við Blönduóskirkju verða tendruð í dag klukkan 17. Sungin verða jólalög og jólasveinar koma í heimsókn. Jólatréð kemur úr Gunnfríðarstaðaskógi, hefur vaxið þar síðan um 1964 og er 11,4 metra hátt sitkagreni. Kveikja átti ljósin á trénu síðastliðinn fimmtudag en því var frestað vegna veðurs. Spáin fyrir daginn í dag er ljómandi góð.