Tilkynningar | 03. desember 2018 - kl. 22:48
Jólastemning í Arion banka

Það verður jólastemning í útibúi Arion banka á Blönduósi miðvikudaginn 5. desember milli kl. 13 og 15. Jólasveinninn mætir í hús með gjafir handa börnunum og þau geta látið mynda sig með sveinka. Foreldrar fá svo myndina í tölvupósti og geta t.d. notað hana á jólakort. Boðið verður upp á rjúkandi jóladrykk og piparkökur.

Við bjóðum alla velkomna í útibúið og óskum Húnvetningum öllum gleðilegra jóla.

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga