Bjarmanes
Bjarmanes
Fréttir | 08. desember 2018 - kl. 12:48
Jólabókakvöld Gleðibankans

Jólabókakvöld Gleðibankans í Bjarmanesi á Skagaströnd verður haldið miðvikudaginn 12. desember klukkan 20.00. Heimamenn ætla að lesa úr eftirtöldum bókum: Geðveikt með köflum, Sagnaseiður, Kaupthinking, Útkall, Hvítabirnir, Rassfar á steini, Villimaður í París og Dauðinn í veiðarfæraskúrnum. Ingeborg Knøsen sér um tónlistarflutning. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga