Tilkynningar | 08. desember 2018 - kl. 17:10
Minnum á jólahlaðborð eldri borgara

Félagsstarf aldraðra og Félag eldri borgara í Austur-Húnavatnssýslu minna á jólahlaðborðið í Félagsheimilinu á Blönduósi sem haldið verður miðvikudaginn 12. desember. Mæting er klukkan 18:00. Eyþór Franzson Wehner organisti leikur fyrir gesti meðan á borðhaldi stendur.

Eigum góða kvöldstund saman á aðventu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga