Fréttir | 12. desember 2018 - kl. 09:48
Feykir auglýsir eftir tilnefningum um mann ársins á Norðurlandi vestra

Líkt og undanfarin ár leitar héraðsfréttablaðið Feykir til lesenda með tilnefningar um mann ársins á Norðurlandi vestra. Tilnefningum skal koma til Feykis á netfangið feykir@feykir.is í síðasta lagi fyrir miðnætti nk. sunnudagskvöld 16. desember. Tilgreina skal fullt nafn, gera stutta grein fyrir viðkomandi einstaklingi og rökstyðja valið á einhvern hátt.

Pálmi Ragnarsson í Garðakoti var kjörinn maður ársins fyrir árið 2017 en hann lést nokkrum mánuðum síðar úr veikindum sem hann hafði lengi barist við.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga