Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 12:52 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 12:52 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 12:52 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 12:52 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 12:52 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 12:52 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Framtíðaruppbygging Þrístapa var kynnt á fundi sveitarstjórnar Húnavatnshrepps í gær en á fundinn mættu þau A. Agnes Gunnarsdóttir, ráðgjafi hjá Versus ehf. og Hringur Hafsteinsson, ráðgjafi hjá Gagarin. Farið var yfir viðskiptaáætlun og hugmyndir um sýningu við Þrístapa. Húnavatnshreppur hefur unnið að þessu metnaðarfulla verkefni að undanförnu en gert er ráð fyrir að tugir þúsunda gesta heimsæki staðinn í framtíðinni.
Þrístapar eru í alfaraleið við Hringveg 1 í Vatnsdal. Fornleifaskráning hefur farið fram á staðnum og eru enn fjórar minjar sýnilegar; aftökustaðurinn, minnismerki um síðustu aftökuna og tvær tóftir með vegghleðslum ásamt grjóthleðslu. Ákveðið hefur verið að stækka helgunarstað minjanna og um leið bæta aðgengi og upplýsingum til almennings með gerð sýningar um aðdraganda og afleiðingar morðsins á Natani Ketilssyni.
Sýningin mun þræða aðdragandann, aftökuna og eftirmálin, en einnig fjalla um glæpi og refsingar á Íslandi í gegnum tíðina. Að lokum verður fjallað um aftökur í heiminum í dag. Sýningin verður sett upp á um þriggja hektara svæði sem teygist frá þjóðveginum að Þrístöpum og aftur til baka. Áætlað er að hún kosti tæpar 82 milljónir króna án virðisaukaskatts.
Hægt er að kynna sér viðskiptaáætlunina hér og hugmyndina af sýningunni hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |