F.v.: Sigurjón, Sigurður, Elín og Jón. Ljósm: textile.is.
F.v.: Sigurjón, Sigurður, Elín og Jón. Ljósm: textile.is.
Notalegt í safninu. Ljósm: textile.is.
Notalegt í safninu. Ljósm: textile.is.
Hátt í 40 manns mættu í safnið. Ljósm: textile.is.
Hátt í 40 manns mættu í safnið. Ljósm: textile.is.
Fréttir | 14. desember 2018 - kl. 11:21
Upplestur á aðventu í Heimilisiðnaðarsafninu

Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi stendur á hverju ári fyrir viðburðinum Upplestur á aðventu. Í ár var tekið forskot á sæluna og hann haldinn rétt fyrir aðventu eða sunnudaginn 25. nóvember síðastliðinn. Hátt í 40 manns mættu í safnið og hlýddu á upplestur úr nýjum bókum. Allir höfundar bókanna sem lesið var upp úr eiga sterk tengsl við Austur-Húnavatnssýslu; Jón Björnsson frá Húnsstöðum, Sigurður Pétursson, fyrrum dýralæknir, frá Merkjalæk og Hólmfríður K. Gunnarsdóttir frá Æsustöðum.

Höfundarnir Jón Björnsson og Sigurður Pétursson, lásu og kynntu nýútkomnar bækur sínar, en Sigurjón Guðmundsson las upp úr bók Hólmfríðar K. Gunnarsdóttur, sem ekki átti heimangengt. Titill bókar Jóns ber nafnið ”Rassfar í steini” en skáldsaga Sigurðar heitir “Út í nóttina” og bók Hólmfríðar “…hjá grassins rót. Ólíkar bækur sem ánægjulegt var að fá innsýn í og gestir gerðu góðan róm að.

Eftir lesturinn þáðu viðstaddir heitt súkkulaði og smákökur og áttu notalega samverustund í safninu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga