Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 20. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:00 0 0°C
Laxárdalsh. 05:00 0 0°C
Vatnsskarð 05:00 0 0°C
Þverárfjall 05:00 0 0°C
Kjalarnes 05:00 0 0°C
Hafnarfjall 05:00 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
27. mars 2024
71. þáttur. Eftir Jón Torfason
24. mars 2024
Trébekkur við Barnabæ.
Trébekkur við Barnabæ.
Fréttir | 16. desember 2018 - kl. 08:29
Jólaskógurinn á Gunnfríðarstöðum
Frá Skógræktarfélagi Austur-Húnvetninga

Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga vill minna á að í dag milli klukkan 11-15 verður hægt að fella sitt eigið jólatré á Gunnfríðarstöðum. Verð á jólatrjám er 5.500 krónur og ýmsar tegundir í boði. Ekta skógarkaffi við varðeldinn en kakóið verður áfram í boði.

Sjá um meðhöndlun jólatrjáa á skog.is.

Njótið skógarmenningar með skógræktarfélaginu og hjálpið okkur að planta fleiri trjám með því að kaupa af okkur jólatré. Bindum kolefni með skógrækt og minkum sótsporið með því að versla í heimabyggð.

Að koma í jólaskóginn á Gunnfríðarstöðum er menningarupplifun sem áður var minna um að hægt væri að upplifa í Húnavatnssýslum en er orðið hluti af jólaundirbúning hjá mörgum í dag.

Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga vill leggja sitt að mörkum við að gera sýsluna okkar að betri stað til að búa á í framtíðinni. Það gerum við t.d. með því að auka gróður og byggja upp jarðveg.

Oft höfum við hjá skógræktarfélaginu verið spurð um nytjar sem skógurinn gefur. Það hefur reynst erfitt að svara spurningunni játandi um miklar nytjar sem gefa mikla fjármuni í aðra hönd. En svarið leynist í grundvallaratriðunum: Skógræktarfélagið framleiðir hreint loft, ferskt vatn og gróðurmold. Aukaafurðir eru t.d. sala á jólatrjám til almennings, torgjólatrjám til sveitafélaga, ýmsar afurðir til fyrirtækja sem þurfa köngla og trjágreinar til að skapa frekari verðmæti. Þá er skógurinn mikið notaður til gönguferða og fræðslu fyrir almenning og skólanemendur. Byrjað er að nota timburafurðir úr Gunnfríðarstaðaskógi. Útbúum staura til merkinga leiða, látum saga niður timbur til að hafa meira skjól á sölusvæði jólatrjáa, smíðum bekki, notum viðinn sem eldivið og útvegum  Blönduskóla efni til smíða. Margir nýta sér sveppina og ylminn sem skógurinn gefur og hafa fagran fuglasöng í kaupbætir.

Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig skógræktarfélagið notar trjáviðinn eftir að trén hafa fengið að standa á Kirkjuhólnum á Blönduósi ár hvert. Bekkurinn stendur við Leikskólann Barnabæ.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið