Frá Hvammstanga.
Frá Hvammstanga.
Fréttir | 17. desember 2018 - kl. 14:23
Nærri fimmfalt meiri eyðsla í Reykjavík en á Hvammstanga

Niðurstöður ferðavenjukönnunar meðal erlendra gesta á átta áfangastöðum voru birtar á föstudaginn í mælaborði ferðaþjónustunnar og kynntar á fundi sem Ferðamálastofa stóð fyrir í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Helstu niðurstöður sýna að ferðavenjur og útgjöld erlendra gesta voru talsvert ólík eftir stöðum og lá helsti munurinn í ástæðum heimsóknar, dvalartíma og neyslumynstri gesta. Lengst dvöldu gestir í höfuðborginni en styst á Hvammstanga.

Í könnuninni var lögð áhersla á greiningu ýmissa einkennandi þátta ferðamanna á rannsóknarsvæðunum s.s. búsetulandi, ferðamáta, gistimáta og dvalarlengd auk þess sem ástæða heimsóknar og útgjaldamynstur þeirra var skoðað.

Meðalútgjöld ferðamanna á sólarhring voru hæst í Reykjavík, alls 38 þúsund krónur, þar sem gisting, veitingar og afþreying voru veigamestu útgjaldaliðirnir. Vægi útgjaldaliða var hins vegar nokkuð ólíkt eftir stöðunum og til að mynda var hæsti útgjaldaliðurinn á Húsavík afþreying þar sem vægi hvalaskoðunar er mikið. Á Húsavík voru útgjöldin um 18 þúsund krónur á sólarhring. Lægst voru þau á Hvammstanga, um 8 þúsund krónur. Með öðrum orðum lætur nærri að eyðsla hvers ferðamanns í Reykjavik sé fimmfalt hærri en á Hvammstanga. Gestir staðanna voru almennt ánægðir með dvölina og víða komu fram jákvæðar athugasemdir um náttúrufegurð og þjónustu en þó var einnig greinileg óánægja með hátt verðlag.

Ferðamálastofa fól Rannsóknamiðstöð ferðamála að framkvæma könnunina sumarið 2018. Könnunin náði til átta áfangastaða: Reykjavíkur, Reykjanesbæjar, Víkur, Stykkishólms, Ísafjarðar, Hvammstanga, Húsavíkur og Egilsstaða. Sem fyrr var framkvæmdin í höndum Lilju B. Rögnvaldsdóttur verkefnastjóra en hún hefur staðið að gerð sambærilegra kannana frá árinu 2013.

Sjá nánar á vef Ferðamálastofu.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga