Úr félags- og tómstundastarfinu. Ljósm: Feykir.is
Úr félags- og tómstundastarfinu. Ljósm: Feykir.is
Fréttir | 03. janúar 2019 - kl. 09:25
Blómlegt starf í Hnitbjörgum

Í kjallara Hnitbjarga á Blönduósi er rekið blómlegt félags- og tómstundastarf fyrir 6o ára og eldri og öryrkja á Blönduósi og í Húnavatnshreppi. Þar kemur fólk af svæðinu saman tvisvar í viku, á mánudögum og fimmtudögum, og á góða samverustund yfir spilamennsku og margs kyns handavinnu. Feykir kom þar við í nóvember síðastliðnum og leit á það sem verið var að fást við.

Sagt var frá því í jólablaði Feykis sem kom út 28. nóvember og einnig má sjá umfjöllunina á vef Feykis.

Það er Sigríður Hrönn Bjarkadóttir sem stýrir félagsstarfinu en þær eru þrjár sem koma að því. Hún segir starfið hafa verið lengi með svipuðu sniði og reynt sé að bjóða upp á það sem óskað er eftir, t.d. bútasaum, postulínsmálun, keramik og fleira. Konurnar séu duglegastar við prjónaskap og hekl en karlarnir hafi meira gaman af að spila lomber, bridge og vist. Einnig hafi margir gaman af að grípa í púsl ef það er í boði. Sigríður segir að 35-45 manns sæki félagsstarfið að jafnaði.

Á Blönduósi starfar líka félag eldri borgara og eftir áramótin er á döfinni að halda námskeið í tálgun en Sigríður segir að það sem helst skorti á í starfinu hjá þeim sé aðstaða til að bjóða upp á einhvers konar smíðavinnu.

Starfsemin er með Facebook síðuna Félags og tómstundarstarf aldraðra.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga