Fréttir | 04. janúar 2019 - kl. 09:23
Valgarður formaður nýs starfshóps

Valgarður Hilmarsson, fyrrverandi sveitarstjóri Blönduósbæjar, hefur verið skipaður, af Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, formaður nýs starfshóps sem gera á tillögur að stefnumótandi áætlun um málefni sveitarfélaga. Í starfshópnum eru annars vegar tveir fulltrúar skipaðir af ráðherra, þau Valgarður og Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi í Akureyrabæ, og hins vegar tveir fulltrúar skipaðir af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, þau þau Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, og Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri í Hveragerði.

Með hópnum munu starfa Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri á skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur á sömu skrifstofu og Karl Björnsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga. Skipunartími starfshópsins takmarkast við embættistíma ráðherra.

Ný reglugerð samþykkt
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur samþykkt nýja reglugerð um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga. Í sveitarstjórnarlögum er kveðið á um að ráðherra leggi fram tillögu til þingsályktunar á Alþingi um slíka áætlun að minnsta kosti á þriggja ára fresti. Í nýju reglugerðinni er nánar kveðið á um hvernig standa skal að gerð áætlunarinnar. Í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar hefur ráðherra skipað starfshópinn með fjórum einstaklingum til að semja tillögur að slíkri áætlun.

Áætlunin skal gilda til fimmtán ára í senn og í henni verður mörkuð aðgerðaáætlun til fimm ára á þessu sviði. Ákvæði um gerð stefnumótandi áætlunar voru færð inn í 2. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, með 10. gr. laga nr. 53/2018.

Samræming í stefnumótun ríkis og sveitarfélaga
Stefnumótandi áætlun um málefni sveitarfélaga er meðal annars ætlað að draga saman meginþætti í langtímastefnumörkun ríkisins í málaflokkum sem snúa að verkefnum sveitarfélaga og samræma stefnumótun ríkis og sveitarfélaga á þeim sviðum með heildarhagsmuni sveitarstjórnarstigsins að leiðarljósi.

Jafnframt verða sett fram leiðarljós um hvert stefna skuli í málefnum sveitarstjórnarstigsins með það að markmiði að efla það og auka sjálfbærni. Stefnumótun ríkisins á þessu sviði er nýmæli og felur í sér að gerð verður langtímaáætlun í takt við aðra stefnumótun og áætlanagerð á verksviði samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, þ.e. samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun/sóknaráætlanir.

Reglugerð um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga nr. 1245/2018

Sveitarstjórnarlög nr. 138/2011 með síðari breytingum

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga