Fréttir | 04. janúar 2019 - kl. 12:30
Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga hjá Neista

Hestamannafélagið Neisti ætlar að bjóða upp á reiðnámskeið fyrir börn og unglinga í vetur. Námskeiðin eru almennt reiðnámskeið 8 ára og eldir, pollanámskeið og námskeið í knapamerkjum. Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku. Tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi á heimasíðu Neista, www.neisti.net.

Skráning fer fram hjá Guðrúnu Rut á gudrunrut@hotmail.com eða í síma 695-8766. Síðasti skráningardagur er 15. janúar.

Almennt reiðnámskeið 8 ára og eldri - 14 skipti
Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn. Leikir og þrautir á hestbaki. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu.

Kennt verður einu sinni í viku á mánudögum og þriðjudögum. Námskeiðið hefst 21. janúar og lýkur í lok apríl. Kennari er Guðrún Rut Hreiðarsdóttir.

Verð fyrir alla önnina: 20.000 krónur (að hámarki, verður lækkað ef vel gengur og tekið tillit til þess ef börn hætta eftir hluta annarinnar). Verð utan félags er 25.000 krónur.

Pollanámskeið - 9 skipti
Ætlað fyrir 7 ára og yngri. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Þátttakendum verður skipt í hópa eftir aldri og getu. Foreldrar/aðstoðarmenn teyma undir þeim börnum sem ekki eru tilbúin að stjórna sjálf.

Námskeið hefst sunnudaginn 3. febrúar. Kennt þrjá fyrstu sunnudaga í mánuði. Kennari er Guðrún Rut Hreiðarsdóttir Verð er 5.000 krónur.

Knapamerki
Ef næg þátttaka næst verður boðið upp á námskeið í knapamerkjum. Áhugasamir sendi tölvupóst á solvabakki@simnet.is fyrir 15. janúar með upplýsingum um aldur og fyrri knapamerkjamenntun.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga