Perla Ruth. Ljósm: usvh.is.
Perla Ruth. Ljósm: usvh.is.
Fréttir | 04. janúar 2019 - kl. 14:20
Perla Ruth íþróttamaður USVH 2018

Perla Ruth Albertsdóttir, handknattleikskona frá Eyjanesi í Hrútafirði, leikmaður Selfoss og íslenska kvennalandsliðsins, var kjörin Íþróttamaður Ungmennasambands Vestur-Húnvetninga árið 2018. Kjörinu var lýst í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga 28. desember síðastliðinn. Í öðru sæti varð Helga Una Björnsdóttir hestaíþróttakona hjá Þyt og í þriðja sæti varð Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona hjá Keflavík.

Perla Ruth æfir og spilar handknattleik með UMF. Selfoss í Olís deildinni þar sem liðið endaði í 6. sæti í vor sem er besti árangur þess í sögu félagsins og var Perla í stóru hlutverki í liðinu í vörn og sókn. Perla endaði tímabilið með 105 mörk í 19 leikjum ásamt því að fiska mikið af vítaköstum og vera lykilleikmaður í varnarleik liðsins. Perla komst einnig með liði Selfoss í 8 liða úrslit bikarkeppni HSÍ. Perla var valin í æfingahóp A-landsliðsins í janúar 2018 og hefur tekið þátt í 7 landsliðsverkefnum á árinu. Þetta er í annað sinn sem Perla Ruth hlýtur titilinn íþróttamaður USVH og hlaut hún einnig titilinn íþróttamaður Árborgar í annað sinn í desember.

Fimm íþróttamenn voru tilnefndir að þessu sinni:

Dagbjört Dögg Karlsdóttir körfuknattleikskona
Hannes Ingi Másson körfuknattleiksmaður
Helga Una Björnsdóttir hestaíþróttakona
Perla Ruth Albertsdóttir handknattleikskona
Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona

Íþróttamenn USVH geta orðið þeir íþróttamenn 16 ára og eldri sem lögheimili eiga í Húnaþingi vestra eða keppa undir merkjum aðildarfélaga innan USVH. Það eru stjórnarmenn í aðildarfélögum USVH og stjórn USVH sem kjósa íþróttamanninn.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga