Ljósm: usvh.is
Ljósm: usvh.is
Fréttir | 11. janúar 2019 - kl. 09:19
Auglýst eftir æskulýðsleiðtoga

Húnaklúbburinn í Húnaþingi vestra leitar að æskulýðsleiðtoga í hlutastarf til að leiða starf klúbbsins á árinu 2019. Samningurinn yrði gerður til 1 árs með möguleika á framlengingu. Í auglýsingu frá klúbbnum segir að þekking á umhverfismenntun sé ekki nauðsynleg en hins vegar þurfi æskulýðsleiðtogi að vera tilbúinn að fræðast um íslenska vistkerfið og afþreyingu utandyra á eigin vegum.

Æskulýðsleiðtogi þarf einnig að vera tilbúinn til að ferðast innanlands og utanlands fyrir þjálfun og starfsþróunar. „Þetta er frábært tækifæri til að vinna með bæði íslensku og alþjóðlegu æskulýðsstarfi, fræðast um umhverfismenntun og hvernig hægt er að styrkja samfélög með því að styrkja ungmennin,“ segir í auglýsingunni.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við Jessicu á jessica@holar.is eða í síma 611-3549, eða við Tönju á tanja@hunathing.is eða koma við í íþróttamiðstöðinni fyrir frekari upplýsingar.

Húnaklúbburinn er samstarfsverkefni á vegum USVH, Selasetursins og íþrótta- og tómstundafulltrúa Húnaþings vestra. Markmið klúbbsins er að stuðla að virðingu fyrir náttúrunni með því að nota staðbundna umhverfisfræðslu. 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga