Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 1 | 2 |
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:53 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:53 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:53 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:53 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:53 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:53 | 0 | 0°C |
18. ágúst 2023 Okur, íslenska og illgresiJá komið þið sæl og blessuð. Nöldri er ekki dauður úr öllum æðum þó langt sé um liðið frá síðasta nöldurpistli. Af nógu er að taka í nöldrinu en ég ætla þó aðeins að nefna nokkur atriði að þessu sinni. Fyrst ætla ég að byrja á verðlaginu í Kjörbúðinni okkar hér á Blönduósi. ::Lesa |
Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum hefur ákveðið að bjóða upp á a.m.k. tvær hestaferðir, á komandi sumri, um söguslóðir morðanna á Illugastöðum og síðustu aftökunnar á Íslandi. Magnús stóð fyrir sambærilegum ferðum síðasta sumar sem voru fjölmennar og vinsælar. Ferðirnar í fyrra urðu þrjár en hver ferð tók fimm daga og gat fólk riðið með einn dag eða svo marga sem það kaus. Sama fyrirkomulag verður á ferðunum í sumar. Fyrri ferðin hefst 27. júní en sú síðari 27. júlí.
Magnús sér um leiðsögn og fararstjórn en hver þátttakandi sér um að útvega sér hesta, fæði og gistingu. Í báðum ferðum verður komið á sömu sögustaðina, en á öðrum degi ferðarinnar verður farin léttari reiðleið en í fyrri ferðinni. Magnús mælir því með þeirri ferð fyrir minna vana reiðmenn og þá sem vilja sleppa við að teyma lausa hesta. „Hins vegar er einstök upplifun að ríða um Heydal og yfir Vatnsnes eins og gert verður í seinni ferðinni, en þar er ekki hægt að reka lausu hestana og þar er farið gamla lestarslóð, sem getur verið frekar blaut á köflum, jafnvel það blaut að þörf sé að teyma hesta,“ segir Magnús í auglýsingu á ferðunum. Hver dagleið er að hámarki 35 km og víða stoppað til að fara yfir söguna. Því duga tveir duglegir hestar fyrir hvern þátttakanda en gott er fyrir hverja tvo að hafa fimm hesta, segir í auglýsingunni, sem sjá má hér.
Magnús rukkar hvern þátttakanda um sama gjald og á síðasta ári sem voru 4.000 kr pr. dag. Afslættir verða veittir þeim sem koma með alla daga ferðarinnar eða koma með hóp fólks með sér. Innifalið í gjaldi er gjald fyrir tvo ferðahesta í næturhólfum. Magnús getur aðstoðað fólk við að finna gistingu og einhverjum getur hann leigt hesta. „Mikilvægt er að fólk panti fyrirfram því ekki er æskilegt að hafa hvern hóp allt of stóran. Ég legg mikið upp úr því að sérhver þátttakandi njóti ferðarinnar í botn,“ segir Magnús. Pantanir skulu berast á Facebook, á netfangið mao@centrum.is eða í síma 898 5695.
Tengd frétt:
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |