Frá undirbúningi afmælishátíðar 1988. Ljósm: grunnskoli.hunathing.is.
Frá undirbúningi afmælishátíðar 1988. Ljósm: grunnskoli.hunathing.is.
FrĂ©ttir | 16. janúar 2019 - kl. 15:26
Auglýst eftir myndum frá undirbúningi afmælishátíðar 1988

Grunnskóli Húnaþings vestra leitar að myndum frá undirbúningsvinnu og sýningum í skólanum á Hvammstanga í tilefni afmælishátíðar Hvammstangahrepps árið 1988. Þeir sem eiga myndir eru vinsamlegst beðnir um að senda þær á netfang skólans eða koma með þær í skólann þar sem hægt er að taka afrit af þeim. „Við leitum bara að myndum sem tengjast skólanum, gerð líkana, sýningum o.þ.h. en ekki frá öðrum viðburðum á Hvammstanga,“ segir á vef skólans.

Frekari upplýsingar um málið veitir skólastjórinn, Sigurður Þór Ágústsson, siggi@hunathing.is.

Netfang skólans er grunnskoli@hunathing.is.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga