Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Það getur verið heppilegt að koma við í Staðarskála á ferðalaginu hvort sem verið er að fara norður eða suður. Hjón að norðan áttu leið fram hjá Staðarskála síðasta laugardag og þegar hungrið sagði skyndilega til sína var ákveðið að stoppa og fá sér pylsu. Þau voru að klára að borga þegar að konan allt í einu mundi eftir því að hún hafi ætlað sér að kaupa Lottómiða fyrir helgina. Honum var því bætt við á síðustu stundu og sem betur fer, því á miðanum leyndust rétt tæpar 22 milljónir.
Það var ekki fyrr en í vikunni að maðurinn átt erindi út í sjoppu að hann lét rúlla miðanum í gegnum Lottókassann sem söng þá svo fallega fyrir hann. Hann dreif sig heim til að segja konu sinni fréttirnar góðu og framundan var svo svefnlítil nótt. Ekkert annað var því í stöðunni daginn eftir en að drífa sig í borgina með miðann og koma honum í öruggar hendur starfsfólks Getspár. Sagt er frá þessu í tilkynningu frá Íslenskri getspá.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |