Fréttir | 20. janúar 2019 - kl. 22:18
Hólabraut 11 er jólahús 2018

Lesendur Húnahornsins völdu á dögunum best skreytta húsið á Blönduósi og var góð þátttaka í valinu. Nokkur hús komu til greina en það hús sem fékk flest atkvæði var Hólabraut 11 en eigendur hússins eru þau Gunnhildur Þórmundsdóttir og Elmar Sveinsson. Fréttaritari kíkti til þeirra í vikunni og afhenti þeim viðurkenningu fyrir valið.

 

Höf. ass

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga