Fulltrúar SSNV. Ljósm: ssnv.is
Fulltrúar SSNV. Ljósm: ssnv.is
Fréttir | 25. janúar 2019 - kl. 11:51
Samtal um stefnur ríkisins í landshlutum

Byggðastofnum hélt í vikunni ráðstefnu í Hveragerði undir yfirskriftinni Samtal um stefnur ríkisins í landshlutum og tóku starfsmenn og formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra þátt í henni. Til umfjöllunar voru hinar ýmsu stefnur ríkisins, hvernig þær tengjast landshlutunum og hvernig samþætta mætti þær starfi í landshlutum. Um 100 manns mættu á ráðstefnuna en auk landshlutasamtaka voru þar fulltrúar ráðuneyta, stoðstofnana, markaðsstofa landshlutanna, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fleiri sem tengjast stefnum ríkisins og landshluta. Sagt er frá þessu á vef SSNV.

Á seinni degi ráðstefnunnar fór fram vinnustofa þar sem þátttakendur svöruðu spurningunni Hvað svo? Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV, hélt þar erindi fyrir hönd landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga sem bar yfirskriftina Frumframleiðsla – Hvað svo?

Í erindinu lagði Unnur áherslu á mikilvægi þess að ríki, stoðstofnanir og landshlutasamtök taki höndum saman og styðji mun betur en gert er við fullvinnslu afurða og þjónustu í héraði til að fjölga störfum, auka þekkingu og þann virðisauka sem myndast af framleiðslunni í heimahéraði.

„Það er mat landshlutasamtakanna að mikið tækifæri felist í því að frumframleiðendur á landsbyggðinni fái hvatningu og stuðning til að fullvinna sína vöru eða þjónustu í nálægð við þau hráefni eða gæði sem notuð eru,“ sagði Unnur og tók dæmi um nokkur fyrirtæki víða um land sem nýta mismunandi hráefni og/eða gæði til að fullvinna sína vöru og þjónustu. Nefndi hún Kerecis á Ísafirði sem framleiðir sérhæfðar lækningavörur úr fiskroði, Pure Natura sem framleiðir fæðubótarefni úr innmat og kirtlum fjallalamba, Óbyggðasetur Íslands í Norðudal í Fljótsdal sem býður ferðamönnum upp á heildarupplifun í afskekktri sveit, Friðheimar á Suðurlandi sem býður matarupplifun sem byggir á eigin ræktun tómata og Krauma í Borgarfirði sem nýtir jarðvarma í héraði úr vatnsmesta hver í Evrópu í glæsilegri baðaðstöðu sem og býður upp á veitingar úr hráefni sem framleitt er í héraði.

Unnur kom einnig inn á í erindi sínu að áhersla á fullvinnslu í héraði eigi sér ríka stoð í stefnu stjórnvalda, heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna auk þess að geta orðið ríkur þáttur í að aðlaga samfélög að þeim samfélagsbreytingum sem koma til með að fylgja fjórðu iðnbyltingunni.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga