Fréttir | 07. febrúar 2019 - kl. 16:37
Námskeið í skipulagningu og utanumhaldi viðburða

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir námskeiði í skipulagningu og utanumhaldi viðburða. Námskeiðið fer fram í Textílmiðstöð Íslands – þekkingarsetri á Blönduósi, í kennslustofu í kjallaranum 25. febrúar frá klukkan 9-16. Námskeiðið er ætlað öllum þeim, sem eru að skipuleggja og halda utan um stóra og smáa viðburði og langar til þess að sækja sér viðbót í verkfærakistuna sína.

Farið verður yfir hluti svo sem markmiðasetningu, markhópa, dagskrárgerð og kynningarmál og á að nýtast öllum reyndum sem óreyndum á þessu sviði.

Aðalleiðbeinandi er Eygló Rúnarsdóttir aðjúnkt við HÍ, sem kennir viðburðastjórnun á þeim bæ, en auk hennar munu a.m.k. 2 aðilar líta við með reynslusögur úr þessum geira.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu, en það er hluti af áhersluverkefni Sóknaráætlunar Norðurlands vestra 2018/19 á sviði ferðaþjónustu. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og gildir „fyrstur kemur, fyrstur fær“.

Skráning til og með 18. febrúar á vef SSNV.   

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga