Frá undirrituninni. Ljósm: byggdastofnun.is
Frá undirrituninni. Ljósm: byggdastofnun.is
Fréttir | 08. febrúar 2019 - kl. 13:59
Samningar undirritaðir vegna styrkja til fjarvinnslustöðva

Á þriðjudaginn undirritaði forstjóri Byggðastofnunar samninga vegna fjögurra verkefna sem styrk hlutu á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024. Styrkirnir eru vegna fjarvinnslustöðva og er heildarfjárhæðin 60 milljónir króna. Meðal verkefnanna er gagnagrunnur sáttanefndabóka sem er í umsjón Rannsóknaseturs Háskóla íslands á Norðurlandi vestra sem staðsett er á Skagaströnd.

Í verkefninu felst að allar varðveittar bækur sáttanefnda á tímabilinu 1798-1936 verða myndaðar og gerðar aðgengilegar á stafrænu formi. Fyrirmynd þessa er dómabókagrunnur Þjóðskjalasafns. Samstarf um verkefnið er við Þjóðskjalasafn og héraðsskjalasafn Skagfirðinga.

Markmiðið með framlögum vegna fjarvinnslustöðva er annars vegar að koma opinberum gögnum á stafrænt form og hins vegar að fjölga atvinnutækifærum í landsbyggðunum. Við mat á umsóknum var stuðst við þætti eins og íbúaþróun, samsetningu atvinnulífs og atvinnustig og þróun á starfsmannafjölda viðkomandi stofnunar undanfarin ár. Byggðastofnun annast umsýslu verkefnastyrkjanna.

Verkefnin fjögur sem hljóta styrk eru:

Skönnun og skráning þinglýstra skjala. Styrkþegi Sýslumaðurinn á Vestfjörðum. Verkefnið verður styrkt um 6 m.kr. á ári í þrjú ár, samtals 18 m.kr.

Þjóðfræðistofan á Ströndum. Söfnun upplýsinga og skráning menningararfs. Styrkþegi Háskóli Íslands. Verkefnið verður styrkt um 6 m.kr. á ári í þrjú ár, samtals 18 m.kr.

Fjarvinnsla á Djúpavogi. Skráning minningarmarka. Styrkþegi Minjastofnun Íslands. Verkefnið verður styrkt um 21 m.kr.

Gagnagrunnur sáttanefndabóka. Styrkþegi Háskóli Íslands. Verkefnið verður styrkt um 9 m.kr.

Sjá nánar á vef Byggðastofnunar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga