Hersteinn Snorri. Ljósm: hunathing.is.
Hersteinn Snorri. Ljósm: hunathing.is.
Fréttir | 12. febrúar 2019 - kl. 10:16
Hlaut 2. verðlaun fyrir ljóðið Skipstjórinn

Hersteinn Snorri Baldursson, nemandi í leikskólanum Ásgarði í Húnaþingi vestra, hlaut 2. verðlaun fyrir ljóðið Skipstjórinn, í ritlistarsamkeppninni Að yrkja á íslensku, sem Kennarasamband Íslands efndi til í tilefni Dags leikskólans. Samkeppnin er liður í vitundavakningu sem sambandið hratt af af stað á Alþjóðadegi kennara á liðnu hausti. Þá var ákveðið að setja móðurmálið í forgang og vinna að verndun og eflingu þess. Sagt er frá þessu á vef Húnaþings vestra.

Ljóðið hans Hersteins Snorra er svona:

Skipstjórinn

Einu sinni var skipstjóri
og lét hann alla gera allt í skipinu
en skipstjórinn stýrði bara allan tímann.
Skipstjórinn dó
og flutti upp í skýin
og til Guðs.
Maðurinn sem drap skipstjórann var vondur
og hann fór til helvítis.

Umsögn dómnefndar: Í ljóðinu Skipstjórinn er sögð saga af lífsbaráttu um borð í skipi, kannski fiskitogara sem aflar þjóðartekna. Illvirki er framið og morðingi fær makleg málagjöld. Mynd af himnaríki og helvíti er raunveruleg í huga ljóðmælanda og munur á réttu og röngu afdráttarlaus, ef allt væri svona skýrt í heimi hér væri gaman að lifa. Ískaldur raunveruleiki úr sjávarþorpi.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga