Frá æfingum. Ljósm: Ingibjörg Jónsdóttir og Aldís Olga Jóhannesdóttir.
Frá æfingum. Ljósm: Ingibjörg Jónsdóttir og Aldís Olga Jóhannesdóttir.
Frá æfingum. Ljósm: Ingibjörg Jónsdóttir og Aldís Olga Jóhannesdóttir.
Frá æfingum. Ljósm: Ingibjörg Jónsdóttir og Aldís Olga Jóhannesdóttir.
Fréttir | 13. febrúar 2019 - kl. 14:38
Söngleikurinn Hárið settur upp á Hvammstanga

Síðastliðið haust sameinuðust Leikdeild Ungmennafélagsins Grettis á Laugarbakka og Leikflokkurinn á Hvammstanga undir nafninu Leikflokkur Húnaþings vestra. Í kjölfarið var farið af stað með barnasýninguna Snædrottningin undir leikstjórn Gretu Clough og í þýðingu Sigurðar Líndals Þórissonar. Sýningin heppnaðist í alla staði mjög vel. Samhliða henni var vígður ljósabúnaður sem Leikflokkur Húnaþings vestra og Félagsheimilið Hvammstanga fjárfestu í og gaf hann sýningunni glæsilegt yfirbragð. Nú er hafinn undirbúningur á söngleiknum Hárið sem sýndur verður um páskana.  

Ingibjörg Jónsdóttir er verkefnisstjóri fyrir söngleikinn Hárið en hún var einnig verkefnisstjóri þegar sýningin Súperstar var sett upp árið 2016. Hún segir hún það mikla heppni fyrir menningarlífið í Húnaþingi vestra að hafa fengið þau hjón heim, Gretu og Sigurð. „Að lokinni sýningu á Snædrottningunni tók Sigurður við af Gretu og hóf undirbúning, í samvinnu við leikflokkinn, á uppsetningu á söngleiknum Hárinu. Söngleikurinn verður frumsýndur 17. apríl næstkomandi og verða fimm sýningar um páskana. Þar mun koma fram í heildina 35 manna hópur og endurtaka leikinn frá því 2016 þegar Súperstar var sett upp fyrir um 900 manns,“ segir Ingibjörg og bætir við að sett verða upphækkuð sæti svo að allir sjái vel til sviðs.

Sýnt verður í Félagsheimilinu Hvammstanga dagana 17., 18., 19., 20. og 22. apríl og hefjast allar sýningarnar klukkan 21:00. Forsala er hafin og er miðaverð 4.800 krónur. Almennt miðaverð verður 5.500 krónur. Miðasala fer fram á www.leikflokkurinn.is.

„Við bjóðum alla velkomna að upplifa söngleikinn Hárið um páskana sem er kraftmikil sýning er fagnar lífinu, frelsinu og jafnréttinu,“ segir Ingibjörg að lokum.

Í boði eru pakkatilboð þar sem hægt er að kaupa gistingu og/eða mat ásamt miða á sýninguna.

TILBOÐ

Hótel Laugarbakki
Tveggja manna herbergi með baði ásamt morgunverði og 2 miðar á sýningu, kr. 20.000. Eins manns herbergi með baði ásamt morgunverði og miða á sýningu, kr. 13.500. 20 % afsláttur af öllu á matseðli. Hótelið er í 10 mínútna fjarlægð frá Hvammstanga. Pantanir í síma: 519 8600

Smáhýsin á Hvammstanga
1 x smáhýsi (max 4 fullorðnir) og  2 miðar á sýningu, kr. 18.000. Uppábúin rúm, allt til þess að elda einfalda máltíð. Pantanir í síma:  860-7700 eða á smahysi@gmail.com.

Sjávarborg
4ra rétta páska/leikhúss seðill. Fennel súpa , heimabakað brauð. Túnfiskur í tempura , paprikusulta. Svína lund, beikon vafðar stengjabaunir, kartöflu gnocci , demi glace. Brownie með ís. Verð kr. 6.900 (borðapantanir amk 2 tímum fyrir sýningu).

 

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga