Frá fundinum. Ljósm: hunathing.is.
Frá fundinum. Ljósm: hunathing.is.
Fréttir | 13. febrúar 2019 - kl. 18:48
Fjölmennt á fundi um móttöku flóttafólks

Um 140 manns mættu á upplýsingafund sem haldinn var á Hvammstanga á mánudaginn vegna móttöku flóttafólks. Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti í desember síðastliðnum að taka á móti 25 flóttamönnum frá Sýrlandi sem dvalist hafa í flóttamannabúðum í Líbanon síðastliðin fjögur til fimm ár.  Fólkið er væntanlegt til landsins í apríl eða maí.

Sagt er frá fundinum á vef Húnaþings vestra. Þar kemur fram að fundurinn hafi byrjað á kynningu frá Guðnýju Hrund Karlsdóttur sveitarstjóra. Næst fjallaði Linda Rós Alfreðsdóttir, sérfræðingur frá félagsmálaráðuneytinu, um verkefnið almennt og reynslu síðastliðin 10 ára. Þá sagði Linda Dröfn Gunnarsdóttir, verkefnastjóri vegna móttöku flóttafólks á Vestfjörðum, frá sinni reynslu og Nína Helgadóttir, verkefnastjóri flóttamannamála hjá Rauða krossinum, sagði frá hlutverki Rauða krossins.   Að lokum deildi Hussain Almamou, flóttamaður frá Sýrlandi, reynslu sinni en hann kom til Akureyrar árið 2016.

Eftir að framsögum lauk var opnað fyrir spurningar úr sal. Góðar spurningar og ábendingar komu fram sem eiga eftir að nýtast við undirbúning verkefnisins, að því er segir á vef Húnaþings vestra.   

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga