Fréttir | 14. febrúar 2019 - kl. 15:38
Áætlað að opna Norðurstrandaleið í sumar

Áformað er að opna Norðurstrandaleið, eða Arctic Coast Way, í júní í sumar. Verkefnið var fyrst kynnt til sögunnar fyrir tveimur árum og á leiðin að draga athygli ferðamanna að strandlengjunni meðfram Norðurlandi. Verkefnið snýst um að búa til svokallaðan ferðamannaveg og er hann 800 kílómetra langur, frá Hvammstanga og að Bakkafirði og fer í gegnum 17 sveitarfélög. Á vef Markaðsstofu Norðurlands segir að slíkir vegir séu þekktir í ferðaþjónustu á heimsvísu, sem verkfæri til að beina ferðamönnum eftir ákveðnum vegum á ákveðin svæði. Markaðsstofa Norðurlands heldur utan um verkefnið.

Norðurland heilsársáfangastaður
Heildarmarkmið verkefnisins er að skapa aukin tækifæri fyrir ferðaþjónustufyrirtæki, með því að skapa vörumerki sem þau geta tengt sig við. Með því gætu þau orðið sýnilegri bæði á innlendum sem og erlendum mörkuðum. Ferðamannavegur er einnig verkfæri til að fá ferðamenn til að fara víðar um landið og á jaðarsvæðin svokölluðu, og til að fá þá til að dvelja lengur á Norðurlandi. Möguleikar gætu skapast fyrir ferðalanga sem vilja upplifa óspillta náttúru strandlengjunnar og uppgötva sjávarþorpin og íbúana þar. Sögur þeirra og menning tengist hafinu órjúfanlegum böndum og nálægðinni við heimskautsbauginn.

5 milljónir í styrk
Verkefnið fékk nýlega úthlutað 5 milljónir króna úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra. Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir í samtali við Ríkisúvarpið að styrkurinn skipti öllu máli fyrir verkefnið. Nú sé hægt að klára þróunarvinnu, gera kynningarefni og sé stefnt að því opna leiðina 8. júní. „Núna er svo gríðarlegur áhugi erlendis frá að við bara erum að setja allt á fulla ferð. Við erum að fá stöðugar fyrirspurnir frá erlendum ferðaskrifstofum og frá blaðamönnum erlendis frá sem vilja vita meira og vilja byrja að fara þessa leið,“ segir Arnheiður í samtali við Ríkisútvarpið.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga