Tilkynningar | 15. febrúar 2019 - kl. 13:40
Héraðsmót USAH 2019

Héraðsmót USAH innanhús í frjálsum íþróttum verður haldin n.k. laugardag, 16. febrúar   í íþróttamiðstöðinni á Blönduósi. Skráning er á staðnum og hefst stundvíslega kl 11:00 en fyrstu greinar verða ræstar kl. 11:10. Mótið er fyrir 10 ára (2009) og eldri.

Keppnisgreinar eru: langstökk án atrennu, kúluvarp, hástökk, 30m spretthlaup og boðhlaup.

Okkur vantar foreldra til að aðstoða við mælingar, tímatöku o.fl. Ef þið sjáið ykkur fært að aðstoða, vinsamlegast láta okkur vita sem fyrst.

Með kærri kveðju

Steinunn Hulda s: 869-4857

Sigrún Líndal s: 897-2884

Hlökkum til að sjá ykkur

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga