Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Blönduós. Ljósm: Róbert Daníel Jónsson.
Fréttir | 18. febrúar 2019 - kl. 10:24
Auglýst eftir viðburðastjóra

Blönduósbær auglýsir á vef sínum eftir viðburðastjóra til að stjórna viðburðum í sveitarfélaginu. Leitað er eftir áhugasömum aðila með þekkingu og reynslu af viðburðastjórnun og er ráðningin tímabundin með möguleika á framlengingu til lengri tíma. Starfið felur m.a. í sér stjórnun og umsjón Húnavöku og útgáfu kynningarefnis. Umsóknarfrestur er til 5. mars næstkomandi.

Húnavaka er bæjarhátíð sem haldin er þriðju helgina í júlí ár hvert. Árið 2019 verður hátíðin haldin daganna 18.-21. júlí. Húnavaka er opin öllum og samanstendur m.a. af fjölskylduskemmtun, dansleikjum, söngvakeppni og kvöldvöku. 

Hæfnikröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af viðburðarstjórnun
Samskipta- og samvinnuhæfni
Jákvætt viðhorf, sveigjanleika og þjónustulund
Gott vald á íslensku, talaðri og ritaðri

Nánari upplýsingar veitir Valdimar O. Hermannsson, sveitarstjóri í síma 455 4700 eða á netfangið valdimar@blonduos.is.

Óskað er eftir að umsókn fylgi ferilskrá yfir menntun og fyrri störf, kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknarinnar og hugmyndir um hvernig umsækjandi sér fyrir sér hátíðina til framtíðar.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga