Fréttir | 20. febrúar 2019 - kl. 09:01
Fjarskiptasjóður úthlutar styrkjum

Sveitarfélög sem tóku þátt í forvali Fjarskiptasjóðs vegna átaksverkefnisins Ísland ljóstengt hafa fengið tilboð um samtals 450 milljón króna styrki vegna ársins 2019, ásamt vilyrði um frekari styrki vegna áranna 2020 og 2021 eftir atvikum, með fyrirvara um fjárlög. Fjórtán sveitarfélög eiga nú jafnframt kost á sérstökum byggðastyrk, samtals 150 milljónum króna. Húnaþing vestra er á meðal þessara sveitarfélaga.

Fjarskiptasjóður auglýsti forval í nóvember síðastliðnum vegna átaksverkefnisins Ísland ljóstengt fyrir árið 2019. Verkefnið er eitt af lykilverkefnum í stjórnarsáttmála og byggðaáætlun stjórnvalda. Markmið þess er að byggja upp ljósleiðarakerfi utan markaðssvæða í dreifbýli um allt land.

Fjórtán sveitarfélög fá byggðastyrki
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur jafnframt ákveðið úthlutun sérstakra byggðastyrkja til valinna sveitarfélaga í tengslum við áform þeirra um ljósleiðarauppbyggingu. Áður hefur ráðuneytið þegar veitt samtals 200 m.kr. í byggðastyrki árin 2017 og 2018. Við skiptingu byggðastyrkja var horft til meðalkostnaðar fyrir hvern stað, þéttleika byggðar, meðalfjarlægð frá þjónustukjarna, hlutfall 4G tenginga, fjárhagsstöðu og meðaltekjur. Hámarksstyrkur til sveitarfélags var ákveðinn 20 m.kr.

Að þessu sinni stendur eftirfarandi sveitarfélögum til boða samningar um samtals 150 m.kr. í sérstaka byggðastyrki (100 m.kr. 2019 og 50 m.kr. 2020) sem skiptast þannig í m.kr:

Bláskógabyggð - 14 m.kr.
Borgarbyggð - 20 m.kr.
Dalabyggð - 12 m.kr.
Fjarðabyggð - 13 m.kr.
Fljótsdalshérað - 20 m.kr.
Sveitarfélagið Hornafjörður - 17 m.kr.
Húnaþing vestra - 10 m.kr.
Ísafjarðarbær - 10 m.kr.
Langanesbyggð - 6 m.kr.
Skaftárhreppur - 8 m.kr.
Sveitarfélagið Skagafjörður - 10 m.kr.
Strandabyggð - 2 m.kr.
Súðavíkurhreppur - 3 m.kr.
Vesturbyggð - 5 m.kr.

Þessir byggðastyrkir verða hluti af samþættri fjármögnun ríkisins í verkefninu kjósi sveitarfélög að gera um þá samning á grundvelli Ísland ljóstengt. Tilteknir byggðastyrkir eru eyrnamerkir ákveðnum svæðum eða verkefnum, s.s. lagningu ljósleiðara milli Mjóafjarðar og Seyðisfjarðar 2019 sem er fyrri áfangi ljósleiðarahringtengingar til Neskaupstaðar. Ráðuneytið hefur jafnframt eyrnamerkt allt að 50 m.kr. í sérstaka byggðastyrki árið 2020 til viðbótar í tengslum við lokaúthlutun vegna átaksverkefnisins Ísland ljóstengt. Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga