Úr Félagsheimilinu á Blönduósi. Ljósm: FE/feykir.is.
Úr Félagsheimilinu á Blönduósi. Ljósm: FE/feykir.is.
Fréttir | 09. mars 2019 - kl. 11:17
Krabbameinsfélagið fagnaði 50 árum

Krabbameinsfélag Austur-Húnvetninga hélt veglega afmælisveislu í tilefni af 50 ára afmæli félagsins sunnudaginn 3. mars. Fjölmargir velunnarar félagsins mættu í Félagsheimilið á Blönduósi og samfögnuðu félaginu sem starfað hefur af miklum krafti í hálfa öld. Á vef Feykis er umfjöllun um afmælisfagnaðinn og þar má sjá fjölda mynda af því sem fram fór.

Dagskráin samanstóð af tónlist og töluðu máli. Sveinfríður Sigurpálsdóttir, formaður félagsins, rakti sögu þess í stuttu máli og ávörp fluttu þær Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands og Halldóra B. Sævarsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Tónlistaratriðin voru ekki af lakara taginu, Hugrún Lilja Pétursdóttir lék á píanó, trúbadorinn Friðrik Halldór söng af innlifun og hjónin Hugrún og Jonni frá Skagaströnd ásamt bakraddafélögum sínum, Siggu og Dóra, fluttu nokkur hugljúf lög. Botninn í dagskrána sló svo Kór Íslands, Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps sem söng af sinni alkunnu snilld.

Að tónlistarflutningi loknum voru allir flytjendur leystir út með Mottumarssokkum. Kynningu dagskrár annaðist Birgitta H. Halldórsdóttir. Að dagskrá lokinni var svo boðið upp á glæsilegt veislukaffi. 

Sá nánar á Feykir.is.  

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga