Fréttir | 11. mars 2019 - kl. 12:13
Flokkstjóra vantar í vinnuskólann í Húnaþingi vestra

Húnaþings vestra auglýsir á vef sveitarfélagsins eftir flokkstjórum við vinnuskólann sumarið 2019. Flokkstjórar bera ábyrgð á sínum vinnuhópi, stýra verkefnum á verkstað og gera vinnuskýrslur fyrir hópinn. Daglegur vinnutími er 8 klukkustundir, virka daga. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Stéttarfélagsins Samstöðu. Umsóknarfrestur er til og með 5. apríl 2019.

Hæfniskröfur:

  • Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri
  • Flokkstjóri skal vera stundvís, jákvæður, lipur og eiga auðvelt með að vinna með öðru fólki
  • Áhugi af garðyrkjustörfum nauðsynlegur
  • Meðmæli frá fyrri störfum

Nánari upplýsingar gefur Ína Björk Ársælsdóttir Umhverfisstjóri í netfangið ina@hunathing.is eða í síma 455-2400.

Höf. rzg

Húnahornið - Fréttavefur allra Húnvetninga